ég er ekki að nenna að blogga
lengur en ætla samt að gera það.
ég var í foreldraviðtali í gær á
leikskólanum hennar heiðu og ég fékk bara að vita að barnið mitt er
fullkomið í alla staði hún er ótrúlega dugleg að öllu sem hún tekur
sér fyrir hendur hún borðar vel á leikskólanum og er alltaf með í
öllu sem er að gerast.
síðan kom svoldið sem ég hló nú bara af
og þeir sem þekkja mig vita afhverju ég fór að
hlæja,
þegar skassinu mínu líður vel þá fer hún
að hækka rödina og tala rosalega hátt og það þarg oft að lækka
aðeins í henni 
Ég er að fara útá land á morgun útaf
óvissuferðini en staðsetningin kemur ekki fram hérna svona ef
eitthver sem má ekki vita hvert er verið að fara sé að lesa því það
fylgir alger leind yfir öllu sambandi við þessa ferð
mig er
eigilega bara farið að hlakka til ferðarinnar

í gær fór ég með henni Birnu minni í ljós
og guð hvað það var gott, síðan kíktum við á Vinsent og það kom í
ljós að hann var laus allan daginn svo við ákváðum að kíkja á kaffi
vín og þar sátum við og spjölluðum þar til að massa hringdi í mig
og ég fór að sækja hana af spítalanum og keyrði hana til ástu,
síðan fórum við Birna og Vinsent í keilu og það var geðveikt gaman
því að éger ógeðslega léleg í keilu en fyrir eitthverja óskýranlega
tilviljun þá vann ég þau bæði með 113 stigum en ég er sanfærð um að
þetta var bara heppni 
svo fór ég og sókti Heiðu og við fórum
til ömmu og afa að fá okkur að borða og svo fórum við til pabba að
kíkja aðeins á tison og tínu og það er alltaf jafn gaman að sjá þau
tvö þau eru svo mikil æði og gaman að fylgjast með þeim Tína er
orðin svo stór að hún er að verða stærri en tison og hún er ekki
nema 6 mánaða 
jæja ég er held ég bara búin að tjá mig
alveg nóg í dag
meira seina eftir helgina